ALMENNAR REGLUR UM SMALAEÐLIS- OG FJÁRHUNDAPRÓF.
Smalaeðlispróf og önnur fjárhundapróf á vegum HRFÍ
Hundaræktarfélag Íslands eða Fjár- og hjarðhundadeild í umboði HRFÍ, geta haldið smalaeðlis- eða fjárhundapróf fyrir hundakyn af fjárhundakyni.
Smalaeðlispróf miðar fyrst og fremst að því að kanna smalaeðli fjárhunds. Í fjárhundaprófi reynir meira á þjálfun og samvinnu manns og hunds. Fjárhundapróf HRFÍ fylgja FCI-reglum.
Hundaræktarfélag Íslands eða Fjár- og hjarðhundadeild í umboði HRFÍ, geta haldið smalaeðlis- eða fjárhundapróf fyrir hundakyn af fjárhundakyni.
Smalaeðlispróf miðar fyrst og fremst að því að kanna smalaeðli fjárhunds. Í fjárhundaprófi reynir meira á þjálfun og samvinnu manns og hunds. Fjárhundapróf HRFÍ fylgja FCI-reglum.
- Prófin skulu auglýst með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara og í auglýsingu skal koma fram hvar prófið verður haldið, hver dæmir það og hvernig skráningu skuli háttað.
- Fjár-og hjarðhundadeild skal sækja um að halda prófið til stjórnar HRFÍ með góðum fyrirvara.
- Fjár- og hjarðhundadeild, ber ábyrgð á undirbúningi þess, framkvæmd og frágangi gagna. Prófblað skal undirritað af dómara og vera í þremur eintökum. Keppandi fær eitt eintak strax að loknu prófi, ræktunardeild viðkomandi hundakyns fær eitt afrit og Fjár- og hjarðhundadeild geymir eitt afrit.
- Skrifstofa HRFÍ gengur frá og sendir gögn til FCI vegna alþjóðlegra prófa.
Þátttakendur:
Allir ættbókarfærðir fjárhundar geta tekið þátt í smalaeðlis- eða fjárhundaprófi, en prófhaldara er heimilt að takmarka skráningu hverju sinni við ákveðið/ákveðin hundakyn og ákveðinn fjölda hunda.
|
Aðstaða og prófsvæði:
- Prófsvæði fyrir smalaeðlispróf, hvort sem er innan dyra eða utan, skal vera að lágmarki 20 X 20 metrar. Stærra svæði þarf þó að jafnaði fyrir rekandi fjárhunda.
- Fyrir fjárhundapróf þarf svæðið að vera nógu stórt til að rúma úthlaup, yfirleitt að lágmarki 100 m að lengd.
- Svæðið þarf að vera afgirt og hættulaust fyrir fjárhund og búfé.
- Áhorfendum er heimilt að standa við girðingu, nema dómari fari fram á annað. Hundar eru bannaðir við girðinguna meðal áhorfenda. Áhorfendum er stranglega bannað að trufla hund í prófi.
Búfé:
- Í smalaeðlisprófi er heimilt að nota hvort sem er kindur eða endur. Tekið skal fram í prófauglýsingu hvaða búfé verður notað. Í fjárhundakeppnum skulu ávalt notaðar kindur.
- Kindur sem notaðar eru, skulu vera heilbrigðar og mega ekki vera með lömbum eða gengnar lengur en þrjá mánuði með lömb.
- Dómari skal ætíð taka tillit til viðmóts búfjár gagnvart hundi og gæta sanngirnis í dómum ef búféð er óvenju óstýrilátt.
- Fyrir hvern hund þarf að minnsta kosti þrjár kindur og er einungis heimilt að nota sömu kindina þrisvar sinnum sama daginn og ekki oftar en tvisvar í röð og með a.m.k. 10 mín hvíld á milli. Sömu reglur gilda ef notaðar eru endur.
Mótmæli:
Vilji þátttakandi kæra dóm, eða telji hann að brotið hafi verið á sér á einhvern hátt, verður stjórn HRFÍ að hafa borist skrifleg kæra þess efnis innan þriggja sólarhringa frá prófdegi, ásamt kærugjaldi sem nemur tvöföldu skráningagjaldi og endurgreiðist aðeins ef kæran er tekin til greina. Niðurstöðu dóms má einungis breyta í eftirtöldum tilvikum:
Stjórn HRFÍ tekur afstöðu til þess hvort breyta eigi niðurstöðu dóms skv.ofansögðu:
Mat á smalaeðli:
|